Um okkur

Memore

Memore.is er íslensk netverslun sem opnaði 2021 og er rekin af ungum foreldrum í Reykjavík. 

Við höfum í gegnum árin hannað saman plaköt og ýmsar vörur inn á heimilið okkar. Hugmyndin af því að opna netverslun byrjaði þegar eldri dóttir okkar var 2ja ára hönnuðum við og framleiddum stafasegla með íslenska stafrófinu sem við vorum með á ísskápnum heima.

Við sáum strax hvað áhuginn hennar og þekking á stöfunum jókst mikið umfram jafnaldra eftir að hún byrjaði að leika sér með þá. Við fórum svo út í það að framleiða og selja þá eftir mikinn áhuga frá fjölskyldu og vinum, enda vantaði á markað segla með íslensku stöfunum. 

Samstarf:
Endilega hafðu samband í gegnum tölvupóstinn okkar: memore@memore.is eða í gegnum samfélagsmiðlana okkar: @memore.is á Instagram og Facebook.

Endursöluaðilar:
Ef þú hefur áhuga á að selja vörur Memore í þinni verslun hafðu þá samband á memore@memore.is

Leikskólar og skólar:
Ef þú hefur áhuga á að nota stafaseglana í skólastarfi, hafðu þá samband við okkur á memore@memore.is

Shopping Cart
Scroll to Top
Scroll to Top